Sálmabók

720. Drottinn minn, Guð

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Drottinn minn, Guð, þú ert bjarg mitt og borg, brugðist þú getur mér eigi. Þú ert mitt athvarf í sérhverri sorg, sól mín á harmanna degi. Frelsisins merki ég hef upp hátt, hjálpin úr upphæðum kemur brátt. 2 Drottinn minn, Guð, þú ert vernd mín og vörn voðans í ólgandi flóði. Frelsa þú lýð þinn og blessa þín börn, blessaði faðirinn góði. Lifandi Drottinn, ég lofa þig, ljósanna faðir, ó, bænheyr mig.


T Valdimar Briem – Vb. 1912
L Melchior Franck 1627 – Thomas Laub 1902 – Ssb. 1936
Gen Himmel aufgefahren ist / Du, som går ud fra den levende Gud

Eldra númer 35
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction