Sálmabók

718. Dag í senn

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Dag í senn, eitt andartak í einu eilíf náð þín, faðir, gefur mér. Mun ég þurfa þá að kvíða neinu þegar Guð minn fyrir öllu sér? Hann sem miðlar mér af gæsku sinni minna daga skammti' af sæld og þraut sér til þess að færa leið ég finni fyrir skrefið hvert á lífs míns braut. 2 Hann sem er mér allar stundir nærri á við hverjum vanda svar og ráð, máttur hans er allri hugsun hærri, heilög elska, viska, föðurnáð. Morgundagsins þörf ég þekki eigi, það er nóg að Drottinn segir mér: Náðin mín skal nægja hverjum degi, nú í dag ég styð og hjálpa þér. 3 Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum frið og styrk sem ekkert buga má. Auk mér trú og haltu huga mínum helgum lífsins vegi þínum á svo að ég af hjartaþeli hreinu hvað sem mætir geti átt með þér daginn hvern, eitt andartak í einu, uns til þín í ljóssins heim ég fer.


T Lina Sandell 1865, 1872 – Sigurbjörn Einarsson 1988 – Sb. 1997
Blott en dag, ett ögonblick i sänder
L Oscar Ahnfelt 1872 – Sb. 1997
Blott en dag, ett ögonblick i sänder

Eldra númer 712
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction