Sálmabók

714. Dag einn fáum við að fagna

Trúarlífið - Gleði og þakklæti

hymn notes
1 Dag einn fáum við að fagna fagra söngnum góða þegar við verðum eitt. Dag einn leyfist oss að leika, syngja, dansa, deila gleði sem Drottinn gaf. 2 Dag einn fáum við að fagna fagra söngnum góða, myrkrið er ljós og líf. Dag einn þegar hatrið hættir hjartans myndast sættir, göngum í heilagt hús. 3 Dag einn fáum við að fagna fagra söngnum góða, múrarnir hrynja hratt. Dag einn morgunn nýr mun lýsa lífsins korn mun rísa, hlekkirnir hrynja af.


T Anna-Mari Kaskinen 1986 – Per Harling 1999 – Sigurður Ingólfsson 2016
Kerran taivas laula / En gång kommer vi att jubla
L Pekka S. Simojoki 1986
Kerran taivas laula / En gång kommer vi att jubla

Uppáhalds sálmar

Under Construction