Sálmabók

713. Skapari ljóss og lífs um heim

Trúarlífið - Gleði og þakklæti

hymn notes
1 Skapari ljóss og lífs um heim lýsir upp jörð og stjörnugeim, himinsól björt og húmið milt hverfur og kemur sem þú vilt. 2 Vinda og sjávar ljúfu ljóð, ljómi mánans og aringlóð, allt sem gleður og birtu ber boðar þig og er gjöf frá þér. 3 Nótt sem dagur er náðargjöf, nafnið þitt blessar dauða´og gröf, upprisinn, sannur sonur þinn sigraði beiskan dauða minn. 4 Láttu þitt orð og anda nú upplýsa sál og skapa trú, svo þeirra líf sem lúta þér ljós þitt birti á jörðu hér. 5 Semdu með mönnum sátt og grið, send þinni veröld náð og frið, líknaðu sárri, sekri jörð, sýknaðu þína barnahjörð. 6 Dýrð, vegsemd, eilíf þökk sé þér, þríeini Guð, sem tignum vér ásamt lýsandi ljóssins her sem lífsins sigurmerki ber.


T Sigurbjörn Einarsson, 2008
L Auður Guðjohnsen 2022
EVERY STAR / Every Star Shall Sing a Carol

Uppáhalds sálmar

Under Construction