Sálmabók

708. Er hretið burtu hrekkur

Trúarlífið - Gleði og þakklæti

hymn notes
1 Er hretið burtu hrekkur og hörfa döpur ský, er birtan himin blessar og breiðist út á ný: Þá lífið aftur lifnar og losnar dauða frá, þá vonir þínar vakna og vængjum berast á. 2 Og myrkrið sem var magnað og máttugt bæði´ og kalt, því birtan burtu víkur og bláminn fyllir allt: Sú birta, himnesk blessun, sú birta, lífsins hnoss, sú birta, sólin bjarta, sú birta, Drottins koss.


T Þórhallur Heimisson 2017
L Guðný Einarsdóttir 2017

Eldra númer 839
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction