Sálmabók

706. Vér áköllum þig

Trúarlífið - Friður og réttlæti

hymn notes
1 Vér áköllum þig, ó, faðir, um frið að fái vort líf á jörðinni grið. Vér biðjum að mannkyni bjargi þín hönd frá böli sem altekur þjóðir og lönd. 2 Ó, börnin vor kær! Heyr bæn fyrir þeim að byggi þau glöð sinn framtíðarheim. Þau viljum vér annast af ástúð og trú og elska hvert líf sem oss skapaðir þú. 3 Og hvort sem vor braut er brött eða greið vér biðjum þig heitt að vísa oss leið. Sjá, veginn til lífsins! Hann förum vér fyrst er fylgdina þiggjum í trúnni á Krist.


T Fred Kaan 1983 – Pétur Sigurgeirsson 1983 – Vb. 1991
We Utter Our Cry: that peace may prevail
L William Croft 1708 – BÞ 1903
HANOVER / O Worship the King

Eldra númer 371
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction