Sálmabók

705. Hvar sem ófriður hreyfir sér

Trúarlífið - Friður og réttlæti

hymn notes
Hvar sem ófriður hreyfir sér af holdsins veikleik bráðum millum kristinna manna hér móti Guðs vilja' og ráðum, gakktu þar, Jesú, milli mest með þínum friðaranda og varna vanda, hjálpa þú svo vér hugsum best í hreinum kærleik að standa.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 21
L Hagenau um 1526 – Wittenberg 1529 – Sb. 1589
Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ

Eldra númer 17
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction