Sálmabók

702. Heyr þann boðskap

Trúarlífið - Friður og réttlæti

hymn notes
1 :,: Heyr þann boðskap er boða við megum bundinn friði og réttlæti' í heimi :,: :,: um trú, von og kærleik. Þar er sigur hins góða á jörð. :,: 2 :,: Þetta guðspjall sem gaf okkur Kristur gefur fátækum nýtt líf og fögnuð :,: :,: og trú, von og kærleik. Þar er sigur hins góða á jörð. :,: 3 :,: Þetta guðspjall sem gaf okkur Kristur gefur þrælum og fjötruðum frelsi :,: :,: og trú, von og kærleik. Þar er sigur hins góða á jörð. :,: 4 :,: Með þeim boðskap sem boða við eigum boðast líkn hinum þjáðu og smáðu :,: :,: með trú, von og kærleik. Þar er sigur hins góða á jörð. :,:


T Eleazar Torreglosa 1997 – Hans Anker Jørgensen 2002 – Kristján Valur Ingólfsson 2006 – Vb. 2013
El mensaje que hoy proclamamos / Hør det budskap som vi proklamerer
L Eleazar Torreglosa 1997 – Vb. 2013
El mensaje que hoy proclamamos

Eldra númer 835
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction