Sálmabók

7. Við kveikjum einu kerti á

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Við kveikjum einu kerti á. Hans koma nálgast fer sem fyrstu jól í jötu lá og Jesúbarnið er. 2 Við kveikjum tveimur kertum á og komu bíðum hans því Drottinn sjálfur soninn þá mun senda' í líking manns. 3 Við kveikjum þremur kertum á því konungs beðið er þótt Jesús sjálfur jötu´ og strá á jólum kysi sér. 4 Við kveikjum fjórum kertum á. Brátt kemur gesturinn og allar þjóðir þurfa' að sjá að það er frelsarinn.


T Sigurd Muri 1963 – Lilja S. Kristjánsdóttir 1979 – Vb. 1991
L Emmy Köhler 1898 – Vb. 1991
Nu tändas tusen juleljus

Eldra númer 560
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction