Sálmabók

699. Á björtum degi

Trúarlífið - Friður og réttlæti

hymn notes
1 Á björtum degi brosir sól við mér, þá birtist mynd af því sem fagurt er í heimi þar sem hamingjan er vís ef hugsum við um okkar paradís. Ég heyri hvernig Guð í hjarta mínu hvíslar. Ég heyri rödd sem talar um kærleik endalaust. Ég heyri þetta vel ef sálm ég fæ að syngja um sumar, vetur, vor og líka haust. 2 Í kringum mig er fólk sem finnur til og furðu margt sem ég hreint ekki skil en Guð á himnum getur bent mér á það góða sem á jörðu finna má. Ég heyri ... 3 Hjá öllum þeim sem efla lífsins mátt býr óskin um að skapa frið og sátt. Þann auð sem felst í ást og von og trú við eigum líka saman - ég og þú. Ég heyri ...


T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2013
L Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2013

Uppáhalds sálmar

Under Construction