Sálmabók

698. Nú sjáum við sólina rísa

Trúarlífið - Friður og réttlæti

hymn notes
1 Nú sjáum við sólina rísa og senn mun allt náttmyrkur flýja því Kristur er kominn í heiminn með kærleik og vonina nýja. Lát friðinn þinn fylla' allan heim og fögnuð þinn sorgirnar hylja, við biðjum þig: Komdu nú brátt og breyttu' öllu að þínum vilja. Við biðjum þig: Komdu nú brátt og breyttu' öllu af þinni náð. :,: Hallelúja, hallelúja. :,: 2 Og vonin sú blómgast í brjóstum að böli og þjáningu linni, allt fólk kynnist náð þinni' og nálægð og nægtir þíns kærleika finni. Lát friðinn þinn ... 3 Við þráum að illsku sé útrýmt svo ávöxtur kærleikans dafni og mannkynið velji Guðs vilja en vonsku og ofbeldi hafni. Lát friðinn þinn ... 4 Við biðjum um veröld án vopna, að vinátta' og samheldni ríki og þjóðirnar tengist í trausti en togstreita' og hatur burt víki. Lát friðinn þinn ... 5 Þótt hrikti í vitskertri veröld er vonin um ríki þitt nærri því senn muntu koma og sigra, þá syndin og illskan er fjarri. Lát friðinn þinn ...


T Silvio Meincke 1982 – Vidar Kristensen 1994 – Ólafur Jóhannsson 2001 – Vb. 2013
Um pouco além do presente / Nå øyner vi lyset av dagen
L Edmundo Reinhardt og João C. Gottinari 1982 – Vb. 2013
Jesus Cristo - esperança do mundo (Um pouco além do presente)

Eldra númer 854
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction