Sálmabók

688. Segðu lof Drottni

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Segðu lof Drottni, sál mín, nú sætt með hjartans fögnuði. Daglega jafnan þakka þú þínum lifanda Guði hver þér líf, kraft og heilsu gaf, hjálp, náð og miskunn veitti nær þjáning þreytti, leysti þig öllu angri af, eymd þinni' í farsæld breytti. 2 Mikil er náð og miskunn þín, minn Jesú hjartakæri, þú virtist svo að minnast mín þó maklegur þess ei væri. Lofuð veri þín líknin góð, lofað sé orð þitt mæta sem böl kann bæta. Lofi himnar og heimsins þjóð helgasta nafn þitt sæta. 3 Nú skal ég héðan af sérhvert sinn með sál, hug, raust og munni lífgjafara og lækni minn lofa af hjartans grunni. Blessuð veri þín blessuð hönd, blessuð sé þín aðhjúkan við mig svo sjúkan. Hirtingarstraffsins harðan vönd hefur þú gjört mér mjúkan. 4 Heiti ég, Drottinn, hér í mót með hjálp og aðstoð þinni af hjartans grunni gjöra bót á gleymsku' og þrjósku minni, öllu framar að þjóna þér og þínum vilja gegna það mest ég megna. Gef þú þar kraft og mátt til mér miskunnar þinnar vegna. 5 Geym mig frá öllum glæpastig, góði Jesú, minn Herra, svo ei til reiði reiti' eg þig né rati í annað verra; virstu mér jafnan vernd og hlíf, vægð og linkind sýna nær sorgir pína; eins þá síðast mitt endar líf annast þú sálu mína.


T Hallgrímur Pétursson 1663
Þakkargjörð fyrir apturfenginn bata
L Hagenau um 1526 – Wittenberg 1529 – Sb. 1589
Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ

Eldra númer 411
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction