Sálmabók

685. Ef hér verður, sem oft kann ske

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Ef hér verður, sem oft kann ske, undandráttur á hjálpinni, bið, styn, andvarpa æ þess meir sem aukast vilja harmar þeir. Föðurlegt hjarta hefur Guð við hvern sem líður kross og nauð. 2 Sjá þú að engill sendur var syni Guðs hér til huggunar. Þeir góðu andar oss eru nær alla tíma þá biðjum vær, helst þá lífs enda líður að. Lasarí dæmi kennir það. 3 Heiður, lof, dýrð á himni' og jörð, hjartanleg ástar þakkargjörð, Drottinn Jesú, þér sætast sé sungin af allri kristninni fyrir stríðið þig þjáði frekt. Það er vort frelsi ævinlegt.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 3
L Schumann 1539 – Sb. 1619
Vater unser im Himmelreich

Uppáhalds sálmar

Under Construction