Sálmabók

683. Ég leita skjóls í skugga vængja þinna

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Ég leita skjóls í skugga vængja þinna ef skelfist ég þá veðurofsinn gnýr. Þar hæli' eg á uns vonskuveðrin linna og vald hins illa burtu frá mér snýr. Í öllum vanda næga hjálp þú hefur, ó, Herra kær, sem aldrei bregðast má. Þú hvíld og rósemd hjarta þreyttu gefur sem hvergi annars staðar mun ég fá. 2 Til þín ég kom með þunga syndabyrði sem þjáði mig og ég ei borið gat. Þá þig ég fékk að þekkja sem minn hirði sem þangað til ég einskis virði mat. En nú af eigin raun og reynslu veit ég: Þótt riði allt ei haggast náðin þín. Í hverri þörf því hiklaust til þín leita' eg og hjálp og blessun eignast sála mín. 3 Hve gott að mega fela' í forsjá þína, ó, faðir mildi, allan lífsins hag og hljóta dýpstu hjartans gæfu sína úr hendi þinni sérhvern ævidag og sjá að hvað sem verða kann á vegi þú velur rétta gæfuhaginn minn og því af öllu hjarta' og sál ég segi: „Hve sælt, ó, Guð, að fá að vera þinn!“


T Bjarni Eyjólfsson, 2004
L Aage Samuelsen 1947
O Jesus, du som fyller alt i alle

Uppáhalds sálmar

Under Construction