Sálmabók

681. María, Drottins móðir kær

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 María, Drottins móðir kær, merkir Guðs kristni sanna, undir krossinum oftast nær angur og sorg má kanna. Til hennar lítur þar Herrann hýrt, huggunarorðið sendir dýrt og forsjón frómra manna. 2 Ég lít beint á þig, Jesú minn, jafnan þá hryggðin særir. Í mínum krossi krossinn þinn kröftuglega mig nærir. Sérhvert einasta sárið þitt sannlega græðir hjartað mitt og nýjan fögnuð færir. 3 Þá ég andvarpa, óska’ og bið, augunum trúar minnar lít ég hvert einasta orðið við upp til krosspínu þinnar. Strax sýna mér þín signuð sár syndugum manni opinn stár brunnur blessunarinnar.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 37
L Kirstín Erna Blöndal 2008

Uppáhalds sálmar

Under Construction