Sálmabók

680. Það húmar, nóttin hljóð og köld

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Það húmar, nóttin hljóð og köld í hjarta þínu tekur völd, þar fölnar allt við frostið kalt, – en mest er miskunn Guðs. 2 Er frostið býður faðminn sinn þér finnst þú stundum, vinur minn, sem veikur reyr er megni´ ei meir, – en mest er miskunn Guðs. 3 En vit þú það sem þreyttur er og þú sem djúpur harmur sker, þótt hrynji tár og svíði sár að mest er miskunn Guðs. 4 Og syng þú hverja sorgarstund þann söng um ást þótt blæði und og allt sé misst, þá áttu Krist. Því mest er miskunn Guðs.


T Sigurður Einarsson – Sb. 1972
L Steingrímur Þórhallsson 2011

Eldra númer 391
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction