Sálmabók

68. Eitt á enda ár vors lífs er runnið

Kirkjuár - Áramót

hymn notes
1 Eitt á enda ár vors lífs er runnið, enn oss sendast Guðs af náðarbrunni líkn, hjálpræði, lífsins gæði, lán og næði – hvarf það hræða kunni. 2 Hjartað dansi, honum lofgjörð inni, hátt til ansi tunga, mannvit, sinni, hver með gáti göfgi kátur, Guðs náð játi, líða' ei láti' úr minni. 3 Honum sálin hlýðni sverji vísa, hans vort málið æ skal gæsku prísa, vort þakklæti veri' hans mæta vilja' að gæta, ást svo ætíð lýsa. 4 Honum felum hagsæld árs komanda, hann sér vel um oss. Hvað mun þá granda? Oss hann seka ei út rekur, allan speki hans burt hrekur vanda. 5 Alvöld mildin, öllu þú sem ræður, enn góðvildar seð oss þinnar gæðum, auðga dyggðum, hamla hryggðum, hrind burt styggðum, bú oss byggð í hæðum.


T Þorvaldur Böðvarsson – Sb. 1801
L Norskt þjóðlag – Weyse 1840 – PG 1861
Herra, þér skal heiður og lotning bera

Eldra númer 97
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction