Sálmabók

678. Drottinn, þú ert lífs míns ljómi

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Drottinn, þú ert lífs míns ljómi, Leiðarstjarna´ á dimmri braut, lof þitt, sál mín, endurómi alla gegnum sorg og þraut. Svo ég þinnar náðar njóti nægjusama gef mér lund og í lífsins ölduróti annast þú mig hverja stund. 2 Fúsa öllu góðu gegna gjörðu sál og huga minn, án þín, Drottinn, ekkert megna, allt ef návist þína finn. Mér er sem að oft ég eygi upp af sorga renna mar brún af gleði, glæstum degi, Guð minn, ertu sjálfur þar. 3 Það skal svala þreyttu geði þar til brestur hjarta mitt, þú ert jafnt í grát sem gleði Guð, ég prísa nafnið þitt. Að ég burtu frá þér færist, faðir, lát ei henda mig. Allt sem lífið er og hrærist eilíflega prísi þig.


T Herdís Andrésdóttir, 1982
L Charles C. Converse 1868 – JH 1891
CONVERSE/ What a Friend We Have in Jesus

Uppáhalds sálmar

Under Construction