Sálmabók

676. Hlýir vindar taka að blása

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Hlýir vindar taka' að blása, veita von um nýja tíma, veita von í döpur hjörtu, veita von sem aldrei þver. Vondir skuggar taka' að hverfa, vetrarkuldinn snýr á flótta, veröld brosir móti sólu, veitir gleði' og blessun mér. Með þér geng ég gæfuveg því þú glæðir allt af kærleik og þú vísar öllum veginn sem villst hafa’ af leið. 2 Þegar óttinn sækir að mér, þegar óvissan mig sligar, þá ég sæki til þín styrkinn, styrkinn sem er vís hjá þér. Allur kvíði frá mér hverfur, allur kuldi lætur undan þegar kærleikur þinn streymir beina leið að hjarta mér. Með þér geng ég ...


T Sigríður Magnúsdóttir 2008 – Vb. 2013
L Sigvald Tveit 1988, 2012 – Vb. 2013
Barna er vår morgendag

Eldra númer 843
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction