Sálmabók

673. Lýs, milda ljós

Trúarlífið - Huggun og von

hymn notes
1 Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn því nú er nótt og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót, þótt fetin nái skammt ég feginn verð ef áfram miðar samt. 2 Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú og hennar ljós? Mér sýndist bjart en birtan þvarr og nú er burt mitt hrós. Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið uns fáráð öndin sættist Guð sinn við. 3 Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá sem barn ég þekkti fyrr.


T John H. Newman 1833 – Matthías Jochumsson – Vb. 1912
Lead, kindly Light
L Charles H. Purday 1860 – BÞ 1912
SANDON / Lead, kindly Light

Eldra númer 352
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction