Sálmabók

662. Vor ævi stuttrar stundar

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Vor ævi stuttrar stundar er stefnd til Drottins fundar að heyra lífs og liðins dóm. En mannsins sonar mildi skal máttug standa' í gildi. Hún boðast oss í engils róm. 2 Svo helgist hjartans varðar. Ei hrynur tár til jarðar í trú, að ekki talið sé. Í aldastormsins straumi og stundarbarnsins draumi oss veita himnar vernd og hlé.


T Einar Benediktsson, 1930 – Sb. 1945
Dánarstef
L Björgvin Guðmundsson – Vb. 1946

Eldra númer 422
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction