Sálmabók

661. Vertu hjá mér, halla tekur degi

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Vertu hjá mér, halla tekur degi, Herra, myrkrið kemur, dylst mér eigi. Þegar enga hjálp er hér að fá, hjálparlausra líknin, vert mér hjá. 2 Óðum sólin ævi minnar lækkar, alltaf heimsins gleðiljósum fækkar, breytist allt og hverfur þá og þá - þú, sem aldrei breytist, vert mér hjá. 3 Kom þú ekki' í konungsvaldi stríðu, kom með þinni elsku, líkn og blíðu, kom að hugga mig er harmar þjá - hæli syndarans, mér vertu hjá. 4 Þú mig tókst í faðm í fyrstu æsku, fyrirleit ég tíðum þína gæsku, aldrei þó mér sekum fórstu frá. Fram til endans, Herra, vert mér hjá. 5 Með þér geðrór mæti' eg hverju fári, með þér verður sæla' í hverju tári, skeyti dauðans skelfist ég ei þá. Skjöldur minn, ó, Jesú, vert mér hjá. 6 Mitt við andlát augum fyrir mínum upp, minn Drottinn, haltu krossi þínum. Gegnum myrkrið lífsins ljós að sjá leyf mér, góði Jesú, vert mér hjá.


T Henry F. Lyte 1847 – Stefán Thorarensen – Sb. 1886
Abide with Me: Fast Falls the Eventide
L JH 1885
Vertu hjá mér, halla tekur degi

Eldra númer 425
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction