Sálmabók

658. Ég horfi yfir hafið

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála' og auða er stari' eg héðan af er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða og hafið dauðans haf. 2 En fyrir handan hafið þar hillir undir land, í gullnum geislum vafið það girðir skýjaband. Þar gróa' í grænum hlíðum með gullslit blómin smá, í skógarbeltum blíðum, í blómsturlundum fríðum má alls kyns aldin sjá. 3 Þar sé ég sólu fegri á súlum standa höll í dýrð svo dásamlegri, hún drifin gulli' er öll. Þar sé ég fylking fríða og fagurbúna sveit um ljóssins sali líða með ljóssins ásýnd blíða í unaðs aldinreit. 4 Ég hljóður eftir hlusta, ég heyri klukknahljóm. Hve guðleg guðsþjónusta er Guðs í helgidóm! Ég heyri unaðsóma og engla skæra raust; um Drottins dýrðarljóma, um Drottins verk þeir róma um eilífð endalaust. 5 Er þetta hverful hilling og hugarburður manns? Nei, það er fögur fylling á fyrirheitum hans er sýnir oss í anda Guðs eilíft hjálparráð og stríðsmenn Guðs þar standa við stól hins allsvaldanda. Þar allt er eilíf náð.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Tegernsee 1506 – Horn 1544 – Sb. 1589
Fröhlich so will ich singen

Eldra númer 440
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction