Sálmabók

653. Ver hjá mér, Drottinn

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Ver hjá mér, Drottinn, dagsins birta fer, dimmir nú óðum, vertu, Guð, hjá mér. Þá annað bregst mér enginn hjálpað fær, þú athvarf hjálparlausra, kom mér nær. 2 Lífdagar hverfa ört sem fjúki fis, fölnar sem blómið heimsins skart og glys, hverfult er allt og valt í veröld hér, ver þú sem aldrei breytist, Guð, hjá mér. 3 Á hverri stund sem líður þarf ég þín, án þinnar náðar blindast augu mín. Hvar á ég skjól ef hönd þín frá mér fer? Fylg mér á nótt sem degi, vak hjá mér. 4 Í þinni nánd ég óttast ekkert fár, allt verður blessun: raunir, kvöl og tár, og sjálfan dauðann sigra ég með þér, ég sigra allt ef þú ert nærri mér. 5 Skín þú til mín nær húmar hinsta sinn, handan um myrkrið lýsi krossinn þinn, þá ljómar dagur, ljós sem aldrei fer. Í lífi´ og dauða vertu, Guð, hjá mér.


T Henry F. Lyte 1847 – Sigurbjörn Einarsson 1987
Abide with Me: Fast Falls the Eventide
L William H. Monk 1861 – BÞ 1912
EVENTIDE/ Abide with Me: Fast Falls the Eventide

Uppáhalds sálmar

Under Construction