Sálmabók

652. Ó, blessuð stund er burtu þokan líður

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Ó, blessuð stund er burtu þokan líður sem blindar þessi dauðleg augu vor en æðri dagur, dýrðarskær og blíður, með Drottins ljósi skín á öll vor spor. 2 Ó, blessuð stund er sérhver rún er ráðin og raunaspurning sem mér duldist hér og ég sé vel að viskan tóm og náðin því veldur að ei meira sagt oss er. 3 Ó, Guð minn, vek þá hugsun mér í huga við hverja neyð og sorg og reynslusár, þá styrkist ég og læt mig böl ei buga og brosið skín í gegnum öll mín tár.


T Wilhelm A. Wexels 1841 – Matthías Jochumsson – Sb. 1886
Tænk, når engang den tåge er forsvunden
L Andreas P. Berggreen 1856 – PG 1878
Tænk, når engang den tåge er forsvunden

Eldra númer 441
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction