Sálmabók

649a. Hvað bindur vorn hug

Trúarlífið - Endalok lífs og eilíft líf

hymn notes
1 Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum en látumst þó allir vaka og hryllir við dauðans dökkum straum þó dauðinn oss megi' ei saka. 2 Til moldar oss vígði' hið mikla vald, hvert mannslíf sem jörðin elur. Sem hafsjór er rís með fald við fald þau falla en Guð þau telur því heiðloftið sjálft er huliðstjald sem hæðanna dýrð oss felur. 3 En ástin er björt sem barnsins trú, hún blikar í ljóssins geimi og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú, oss finnst þar í eining streymi. Frá heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. 4 Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri' en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir.


T Einar Benediktsson 1900 – Vb. 1933
L Christoph E.F. Weyse 1826 – PG 1861
Den signede dag med fryd vi ser

Eldra númer 418
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction