Sálmabók

646. Helgunarklæðið hafði eg misst

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Helgunarklæðið hafði' eg misst, hlaut því nakinn að standa. Adam olli því allra fyrst, arf lét mér þann til handa. Syndanna flík ég færðist í, forsmán og minnkun hlaust af því með hvers kyns háska' og vanda. 2 Burt tók Jesús þá blygðun hér, beran því lét sig pína. Réttlætis klæðnað keypti mér, kann sá fagurt að skína. Athvarf mitt jafnan er til sanns undir purpurakápu hans, þar hyl ég misgjörð mína.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 24
L Coverdale um 1535 – Magdeburg 1542 – Gr. 1594
Van allen Minschen affgewandt

Eldra númer 198
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction