Sálmabók

643a. Nú stendur yfir mín náðartíð

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Nú stendur yfir mín náðartíð, nauðsyn er þess ég gætti. Líður mig Drottins biðlund blíð brot mín svo kvittast mætti. 2 Ef ég þá tíð sem Guð mér gaf gálaus forsóma næði, Drottins tími þá tekur af tvímælin öll í bræði. 3 Guðs vegna að þér gá, mín sál, glæpum ei lengur safna, gjörum iðrun því meir en mál mun vera synd að hafna. 4 Í dag við skulum skipta' um skjótt, skal synd á flótta rekin, hver veit nema sé nú í nótt náðin í burtu tekin.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 8
L Zwick 1540 – Sb. 1589
Der von dem Geist gefreiter war / Sá frjáls við lögmál fæddur er

Eldra númer 310
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction