Sálmabók

641. Í anda, Kristur, enn ég lít

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Í anda, Kristur, enn ég lít hið auða fíkjutré sem fordæmt með sín fölnuð lauf til foldar visnað hné. 2 Því ávöxtu það enga bar með auð sín blöð og tóm. Mér er sem sjái' eg sjálfan mig og sjálfs mín skapadóm. 3 Ég er þitt fordæmt fíkjutré sem fell og visna skjótt. Mitt líf nú senn er orðið allt og að fer dauðans nótt. 4 Á fund þinn, Kristur, kem ég nú, ég krýp og til þín bið. Við kross þinn sprettur lífsins lind með líkn í sínum nið. 5 Þinn, Kristur, snart ég klæðafald með kærleiksmáttinn sinn, mér hvarf af augum hula sú sem huldi guðdóm þinn. 6 Mér athvarf, Kristur, orð þitt var, þitt ávarp veikum reyr: Rís, sonur minn, þín synd er bætt en syndga eigi meir. 7 Mér athvarf, Kristur, orð þitt var, þitt orð sem heyri' eg nú: Ég lifi og þú lifa munt, þér lífið gaf þín trú.


T Lárus H. Blöndal – Sb. 1972
L Þórarinn Guðmundsson

Eldra númer 312
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction