Sálmabók

640. Þú vilt minn faðir vera

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Þú vilt minn faðir vera, þú vilt mig barn þitt gera, minn gæskuríki Guð, að sanna sælu finni mín sál í elsku þinni og verði frjáls og fullkomnuð. 2 Ég vil og barn þitt vera, þinn vilja' af kærleik gera en blygðast mín ég má því áform oft hið besta ég áður hét að festa en hvert sinn aftur hvarf þar frá. 3 Ei má svo búið bíða. Með blygðun og með kvíða þig enn ég ásjár bið: Tak vægt á vanþakklæti, minn veikleik náð þín bæti, æ, þreyst ei mér að leggja lið. 4 Lát guðdómsgæsku þína sem glötun vildi' ei mína svo hræra hjartað mitt að ginning girnda' eg hafni. Ó, gef í Jesú nafni að geðþekkt barn ég gjörist þitt.


T Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi – Sb. 1886
L Heinrich Isaac um 1495 – Nürnberg 1539 – PG 1861
Innsbruck, ich muss dich lassen / Nun ruhen alle Wälder

Eldra númer 348
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction