Sálmabók

635. Enginn örvænta skyldi

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Enginn örvænta skyldi þó iðrast hafi seint, söm er Guðs sonar mildi sé annars hjartað hreint því hvorki við stað né stundir stíluð er Drottins náð, allt fram andlátið undir oss býðst hans hjálparráð. 2 En þú skalt ekki treysta óvissri dauðastund né Guðs með glæpum freista, gjörandi þér í lund náðartíminn sé næsta nógur höndum fyrir, slíkt er hættusemd hæsta, henni Guð forði mér.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 39
L Gesius 1603 – Ssb. 1936
Befiehl du deine Wege

Eldra númer 328
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction