Sálmabók

634. Guð faðir, þín hátign, þitt heilaga vald

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Guð faðir, þín hátign, þitt heilaga vald er hulið í dýrð bak við geislanna fald frá ljóma þíns auglits. Þitt eilífa ráð fá englarnir hæstu ei skynjað né tjáð. 2 En með þeim vér tignum þín voldugu verk og vitum að hönd þín er gjöful og sterk, að hjálp þín ei brestur né geigar þín gjörð, að gæska þín umvefur himin og jörð. 3 Þú gefur oss lífið, vér lifum í þér, þín líkn er í öllu, jafnt hulin sem ber. Þótt falli vor heimur sem fis eða strá þín föðurnáð varir og breytast ei má. 4 Svo hefur þú birt oss þitt blessaða vald, svo brosir þín mynd gegnum himnanna tjald því sonur þíns kærleika, Kristur, er hér, hann kom þig að birta og gefa oss þér. 5 Og trúin þig sér er vér tilbiðjum hann sem tók á sig duft vort og frelsið oss vann, þá vitnar þinn andi að vald þitt og ráð er viska og trúfesti, elska og náð.


T Walter C. Smith 1867 – Sigurbjörn Einarsson – Vb. 2013
Immortal, Invisible, God Only Wise
L William Croft 1708 – BÞ 1903
HANOVER / O Worship the King

Eldra númer 836
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction