Sálmabók

633. Til þín, ó, Guð, ég hljóður huga sný

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Til þín, ó, Guð, ég hljóður huga sný - við heimsins iðutorg ég þreyttur bý. Þú getur veitt mér fögnuð, ljós og frið, ó, faðir, ég um þína návist bið. 2 Ó, kom þú þar sem ligg ég særður synd og svala mér af þinni náðarlind og gef mér styrk að standa' á fætur enn og starfa vel því nóttin kemur senn. 3 Ó, veit mér styrk í hvers kyns harmi' og þraut og hjálpa mér að ganga rétta braut; ó, faðir, tak þú hlýtt í mína hönd er harmþrunginn ég reika' um skuggans lönd.


T Jakob Jóhannesson Smári, 1937 – Sb. 1945
L William H. Monk 1861 – BÞ 1912
EVENTIDE/ Abide with Me: Fast Falls the Eventide

Eldra númer 347
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction