Sálmabók

630. Heyr, himna smiður

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Heyr, himna smiður, hvers skáldið biður, komi mjúk til mín miskunnin þín. Því heit eg á þig, þú hefur skaptan mig, ég er þrællinn þinn, þú ert Drottinn minn. 2 Guð, heit eg á þig að græðir mig, minnst, mildingur, mín, mest þurfum þín. Ryð þú, röðla gramur, ríklyndur og framur, hölds hverri sorg úr hjartaborg. 3 Gæt, mildingur, mín, mest þurfum þín helst hverja stund á hölda grund. Set, meyjar mögur, máls efni fögur, öll er hjálp af þér, í hjarta mér.


T Kolbeinn Tumason um 1200 – Sb. 1945
L Þorkell Sigurbjörnsson 1973 – Vb. 1976

Eldra númer 308
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction