Sálmabók

629. Bjargið alda, borgin mín

Trúarlífið - Iðrun og náð

hymn notes
1 Bjargið alda, borgin mín, byrg þú mig í skjóli þín. Heilsubrunnur öld og ár er þitt dýra hjartasár. Þvo mig hreinan, líknarlind, lauga mig af hverri synd. 2 Heilög boðin, Herra, þín hefur brotið syndin mín. Engin bót og engin tár orka mín að græða sár. Ónýt verk og ónýt trú, enginn hjálpar nema þú. 3 Titrandi með tóma hönd til þín, Guð, ég varpa önd. Nakinn kem ég, klæddu mig, krankur er ég, græddu mig, óhreinn kem ég, vei, ó, vei, væg mér, Herra, deyð mig ei. 4 Þegar æviþrautin dvín, þegar lokast augun mín, þegar ég við sælli sól sé þinn dóms- og veldisstól: Bjargið alda, borgin mín, byrg mig þá í skjóli þín.


T Augustus M. Toplady 1776 – Matthías Jochumsson, 1900 – Sb. 1945
Rock of Ages, Cleft for Me
L Thomas Hastings 1831 – BÞ 1912
TOPLADY / Rock of Ages, Cleft for Me

Eldra númer 317
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction