Sálmabók

626. Ver óttalaus, þú átt það sigurmark

Trúarlífið - Leit og efi

hymn notes
1 Ver óttalaus, þú átt það sigurmark þér yfir og það nafn sem helgast er, að þú ert hvergi einn í neinni nótt, Guðs náðaraugu vaka yfir þér. 2 Hann elskar þig og er að vænta þín, hver andrá hvíslar: Ég vil finna þig, ef þú vilt fara, gleyma, glata mér, þá græt ég sárt og allt í nánd við mig. 3 Ver óttalaus, þín bíður heilög höfn sem hylst þér nú en lenda skaltu þar og sjá og finna friðarkonung þann sem frelsa vill og syndir þínar bar. 4 Þú ert á leið til ljóss frá allri nótt, það ljómar sólskin Drottins móti þér ef þú vilt sjá og helgast ríki hans sem heimsins ljós og von og björgun er.


T Sigurbjörn Einarsson, 2008, byggt á texta eftir Ylva Eggehorn 1972 – Vb. 2013
Var inte rädd, det finns ett hemligt tecken
L Lars Moberg 1974 – Vb. 2013
Var inte rädd, det finns ett hemligt tecken

Eldra númer 923
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction