Sálmabók

621. Guðs kirkja er byggð á bjargi

Trúarlífið - Kirkjan

hymn notes
1 Guðs kirkja' er byggð á bjargi en bjargið Jesús er, hún er hans undrasmíði sem alla dýrð hans ber. Af vatni, orði' og anda hún öðlast hefur líf og sett á öllum öldum sem allra þjóða hlíf. 2 Í hennar háu sölum býr heilög, frelsuð drótt, í trú og einum anda hún á sinn mikla þrótt. Þar rúmast allir inni með einum hug og sál og sérhver kynslóð sést þar og sérhvert heyrist mál. 3 Hún lýst er upp með ljósi sem lýsir út um heim í nákalt niðamyrkrið og næturskuggans geim. Á ljós það lýðir stefna sem líkn og sannleik þrá, þar rúm er öllum reiknað sem ratað þangað fá. 4 Og þar er gott að þreyja því þrennur Guð og einn þar vakir öllum yfir svo ekki glatist neinn sem þar í trú og trausti sér tryggir samastað og flýr úr syndafjötrum í frelsisvígið það.


T Samuel J. Stone 1866 – Friðrik Friðriksson, 1947 – Sb. 1972
The Church´s one foundation
L Samuel S. Wesley 1864 – BÞ 1903
AURELIA/ The Church´s one foundation

Eldra númer 288
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction