Sálmabók

618. Kirkja vors Guðs er gamalt hús

Trúarlífið - Kirkjan

hymn notes
1 Kirkja vors Guðs er gamalt hús, Guðs mun þó bygging ei hrynja. Guð er til hjálpar henni fús hvernig sem stormarnir dynja. Mannvirki rammgjörst féllu fljótt, finnur enn skjólið kristin drótt Herrans í húsinu forna. 2 Herrann ei býr í húsum þeim hagleg er mannaverk þykja, musteri gjörvöll hér um heim himnanna Drottin ei lykja. Þó hefur bústað byggðan sér blessaður Guð í veröld hér dýran, af duftinu reistan. 3 Inni Guðs veglegt erum vér upp byggt af lifandi steinum, skírn vora tállaus trú ef er tengd við í kærleika hreinum. Jörðinni þó að allri á aðeins vér lifðum tveir oss hjá byggi vor blessaði Drottinn. 4 Hvar sem í náðarnafni Krists nokkrir í sameining biðja andans er friður æ þeim viss, orðin Guðs heilög þá styðja. Guð sjálfur er sem orð hans blíð alls staðar nærri' á hverri tíð náðþyrstum sálum að svala. 5 Hús þau er kirkjur köllum vér kær skulu' oss öllum þó vera. Frelsarinn börn svo faðmi' að sér foreldrar þangað þau bera. Guðs hús er þar og himnahlið, hefur þar sáttmál gjört oss við hann sem oss himinerfð gæddi. 6 Skírnarker minnir skýrt oss á skírnina' er náðinni heitir, altarið máltíð eins á þá andans er næringu veitir. Fögnuði með þar finnum vér frelsari vor að hjá oss er, miskunn hans sífellt hin sama. 7 Náðugi Guð, af náð veit þú nær sem að klukkurnar kalla, söfnuðir Krists í sannri trú safnist um veröldu alla, lát þá í anda son þinn sjá, sonar þíns kveðju heyrða fá: „Friður sé öllum með yður.“


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1837 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Kirken den er et gammelt hus
L Ludvig M. Lindeman 1840 – SE 1919
Kirken den er et gammelt hus

Eldra númer 285
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction