Sálmabók

614. Kirkjan er oss kristnum móðir

Trúarlífið - Kirkjan

hymn notes
1 Kirkjan er oss kristnum móðir, kristinn sérhver er vor bróðir, Guðs og Krists vér erum ætt allir sem hún hefur fætt. 2 Móðir sú til frelsis fæðir, frjálsra þegna rétti gæðir, móðurþel til barna ber, blítt þau tekur öll að sér. 3 Svo hún gjört oss frjálsa fái, frjáls og hlýðin börn oss sjái, frelsislærdóm frelsarans flytur hún í nafni hans. 4 Hún vill aðeins laða' og leiða lýð en ei með valdi neyða, býður frelsi, boðar náð, birtir himneskt líknarráð. 5 Börn sín vill hún Kristi klæða, Krists með náðarbrauði fæða að hún loksins fái fært föðurnum hvert barn sitt kært. 6 Það er vinna vill þín kirkja virstu, Guð, af náð að styrkja að það beri ávöxt þann er þá móður gleðja kann. 7 Hennar móðurhjarta kættu, hennar móðursorgir bættu, vorri móður vernd þú sýn, vora móður sigri krýn.


T Magnus B. Landstad um 1861 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Kirken er til Moder kaaret
L Andreas P. Berggreen 1852 – PG 1878
Aldrig er jeg uden våde

Eldra númer 286
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction