Sálmabók

611. Þér lof vil ég ljóða

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Þér lof vil ég ljóða, þú, lausnarinn þjóða er gafst allt hið góða af gæsku og náð. Þá miskunn og mildi ég miklaði' ei sem skyldi þótt vegsama' æ ég vildi þá visku og dáð. 2 Er líkn þína lít ég þá lofa þig hlýt ég því náðar æ nýt ég sem ný er hvern dag. Nú heyri ég hljóma þá helgu leyndardóma sem englaraddir óma við eilífðarlag: 3 „Sjá, lof allra lýða og landa og tíða þér ber, lamb Guðs blíða, frá blóðdrifnum stig. Frá djöfli og dauða, frá dómi syndanauða þú leystir lýði snauða, því lofum vér þig.“


T Hollenskur höf. ók. – Theodore Baker um 1900 – Bjarni Eyjólfsson, 1959 – Vb. 1991
We gather together
L Hollenskt lag – Valerius 1626 – Vb. 1991
Wilt heden nu treden voor God, den Heere / KREMSER

Eldra númer 535
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction