Sálmabók

610. Ó, Drottinn Kristur

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Ó, Drottinn Kristur, dýrleg, rík og há skín dáð og mynd þíns lífs um aldaslóð. Vor dauðleg augu endurskinið sjá og aðeins brot af þinni sólarglóð. 2 Lát nýja hugsun nema vilja þinn og ná að túlka rétt þitt helga mál og nýjar tungur tjá þér fögnuð sinn er tindra ljósin þín í hug og sál. 3 Lát nýja kynslóð flytja Faðir vor og fjærstu lýði þína birtu sjá, þitt frelsi, þína fórn og heilög spor og finna líf sem grær þér einum hjá. 4 Þú ert um eilífð nýr og samur samt. Lát safnast alla menn í þína hjörð því einn þú hefur alla frelsað jafnt og átt hvert barn á þinni víðu jörð.


T Sigrid Dahlquist 1923 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Låt nya tankar tolka Kristi bud
L David Wikander 1937 – Vb. 1976
Låt nya tankar tolka Kristi bud

Eldra númer 306
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction