Sálmabók

608. Þú heimsins ljós

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Þú heimsins ljós, Guðs ljómi skær, ó, lýs þú, Kristur, fjær og nær, leið alla týnda til þín heim og tak í náð á móti þeim. 2 Lát alla sem ei þekkja þig og þá sem villast átta sig, frá birtu þinni bjarma fá og blessun finna, marki ná. 3 Vek, hirðir góði, hverja sál sem hyllir blekking, lokkar tál og hverja sjúka, sára önd þín sefi mjúka læknishönd. 4 Lát eyrun daufu opnast þér, ljúk upp þeim hug sem byrgður er svo hjartað finni frelsi sitt og friðinn eina, ríki þitt. 5 Gef blindum augum bót og sýn að birtist öllum náðin þín, ger alla menn að einni hjörð í einni trú á nýrri jörð. 6 Svo verði allir eitt í þér sem allra synd og raunir ber eins hér á jörð sem himnum á, þú hjartans sanna von og þrá.


T Johann Heermann 1630 – Sigurbjörn Einarsson, 1996 – Sb. 1997
O Jesu Christe, wahres Licht / O Krist, du sanne lys og vei
L Nürnberg 1676 – PG 1878
O Jesu Christe, wahres Licht

Eldra númer 729
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction