Sálmabók

607. Ég vil lofa þig, Drottinn, í ljóði

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Ég vil lofa þig, Drottinn, í ljóði og með lofsöng ég tigna vil þig fyrir náð þá er ei tekur enda, þína elsku og gæsku við mig. Allt mitt líf vil ég gera að lofsöng til þín svo ég ljóst megi um þig vitni bera. Jafnt á sorgar og gleði og gæfunnar stund vil ég, Guð minn, til heiðurs þér vera. 2 Enginn annar má lofsöng minn eiga því að einn ertu verðugur hans. Og á himni mun söngurinn hljóma þér til heiðurs af vörum hvers manns. Allt mitt líf ... 3 En ef söngur minn hér skyldi hljóðna í þeim heimi sem veitir ei grið bið ég, Drottinn, mín opnaðu augu svo að eygi ég náð þína´ og frið. Allt mitt líf ...


T Christer Hultgren 1977 – Lilja S. Kristjánsdóttir 1978
Jeg vill ge dig, o Herre, min lovsång
L Christer Hultgren 1977
Jeg vill ge dig, o Herre, min lovsång

Uppáhalds sálmar

Under Construction