Sálmabók

606b. Í miskunn, Guð, vor minnstu nú

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Í miskunn, Guð, vor minnstu nú, veit milda blessun þína, þitt auglit blítt og orð lát þú til eilífs lífs oss skína. Þinn helgan veg og hjálparráð gef heimur allur sjái og Herrans Jesú heilög náð til hverrar þjóðar nái og alla frelsað fái. 2 Þig lofi, Guð, þín himnesk hjörð, þér heiður mannkyn rómi. Því fagni sérhvert fólk á jörð með fögrum söngvahljómi að réttinn hönd þín voldug ver og valdi syndar eyðir en líf og kraftur orð þitt er sem öllum veginn greiðir á réttar lífsins leiðir.


T Martin Luther 1524 – Sb. 1589 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Es wolle Gott uns gnädig sein
L 15. öld – Senfl 1522 – Gr. 1594 – PG 1861
Es wolle Gott uns gnädig sein

Eldra númer 301
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction