Sálmabók

605. Drottinn, sjá, vér sífellt bíðum

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
1 Drottinn, sjá, vér sífellt bíðum, sjá, vér biðjum um þá náð að þú nú sem áður sendir andans kraft um gervallt láð. Anda þinn og elsku þína, auðmjúkt hjarta gefðu mér. Láttu svo mitt lífið skína, laði' eg aðra' að gefast þér. 2 Drottinn, þínum úthell anda yfir hvern sem þyrstur er. Kraft af himinhæðum sendu hjörtum þeim er treysta þér. Anda þinn ... 3 Hreinsa þú mitt hjarta, Drottinn, hverja misgerð tak þú brott. Lát mig fyrir öllum augljóst elsku þinni bera vott. Anda þinn ... 4 Drottinn, láttu eins og áður alla máttarverk þín sjá, andann lækning veikum veita, vekja aðra dauðum frá. Anda þinn ... 5 Láttu sama frelsisfögnuð fylla þá sem treysta þér og þú þínum veiku vottum veittir fyrst á jörðu hér. Anda þinn ...


T Eric Bergquist 1904 – Bjarni Eyjólfsson, 1940
Herre, se vi väntar alla
L Paderborn 1765
Herre, se vi väntar alla / Å, kor djup er Herrens nåde

Uppáhalds sálmar

Under Construction