Sálmabók

604. Vér biðjum þig, ó, Kristur kær

Trúarlífið - Vitnisburður - Kristniboð

hymn notes
Vér biðjum þig, ó, Kristur kær, lát kenning þína fjær og nær um heiminn blessun breiða, gegn táli syndar veit oss vörn að verðum Guðs hin réttu börn, þinn anda lát oss leiða. Við hjarta þitt oss haltu fast og hjörtu vor lát gagntakast af ástaranda heitum, sem ljóssins börn að lifum vér og loksins hljótum vist hjá þér með helgum himnasveitum.


T Johannes Zwick 1540 – Sb. 1589 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Jetzund so bitten wir dich Herr ( síðasta vers úr Herr Gott, dein Treu mit Gnaden leist)
L Matthäus Greiter 1525 – Sb. 1589
Es sind doch selig alle, die / O Mensch, bewein dein Sünde Groß

Eldra númer 303
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction