Sálmabók

6. Hans leið skal lögð með klæðum

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Hans leið skal lögð með klæðum og lyftast dalur hver því Guð úr himinhæðum í honum kominn er sem frelsun mönnum færir og friðarvonir nærir. Hann sinna vitja vill. Þú veröld, konung hyll! 2 Vér höndum vorum veifum, við veginn stígum dans og grænum greinum dreifum á götu frelsarans. Og hróp vort „Hósíanna!“ er heilsan breyskra manna sem böl og harmar hrjá til hans sem lausnir á. 3 Kom, kom með blessun bjarta og bægðu myrkri frá! Inn, inn um hlið míns hjarta skal himnesk birta ná! Upp, upp, nú lofgjörð ómi með allra þjóða rómi er saman syngjum vér: „Guðs sonur, dýrð sé þér!“


T Frans M. Franzén 1812 – Svavar A. Jónsson 2005 – Vb. 2013
Bereden väg för Herran
L Sænsk laggerð af þýsku þjóðlagi, 1693 – Vb. 2013
Bereden väg för Herran

Eldra númer 801
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Matt. 21.8–9

Uppáhalds sálmar

Under Construction