Sálmabók

598. Áfram, Kristsmenn, krossmenn

Trúarlífið - Í fylgd með Kristi

hymn notes
1 Áfram, Kristsmenn, krossmenn, kóngsmenn erum vér. Fram í stríðið stefnið, sterki æskuher. Kristur er hinn krýndi kóngur vor á leið. Sjáið fagra fánann frelsis blakta' á meið. Áfram, Kristsmenn, krossmenn, kóngsmenn erum vér. Fram í stríðið stefnið, sterki æskuher. 2 Gjörvöll Kristí kirkja kveður oss með sér, fjendur ótal eru, ei þó hræðast ber. Konungsstólar steypast, stendur kirkjan föst, bifast ei á bjargi byggð þótt dynji röst. Áfram, Kristsmenn ... 3 Komið, allar álfur, allra þjóða menn. Veitið oss að vígi, vinna munum senn. Allar englatungur undir taki' í söng: Dýrð og lof sé Drottni, dýrð í sæld og þröng. Áfram, Kristsmenn ...


T Sabine Baring-Gould um 1870 – Friðrik Friðriksson, 1917 – Sb. 1945
Onward! Christian soldiers
L Arthur S. Sullivan 1872 – Vb. 1946
ST. GERTRUDE / Onward! Christian soldiers

Eldra númer 515
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction