Sálmabók

594. Drottinn minn, að dyrum þínum

Trúarlífið - Í fylgd með Kristi

hymn notes
1 Drottinn minn, að dyrum þínum dags við lok ég kem að sjá veika styrk í sorgum sínum, sjúka líf og heilsu fá. Fyrr en eldar fyrst af degi finn ég þig á eyðivegi bera fram í bæn og trú bæinn þann er sefur nú. 2 Má ég, Drottinn, með þér krjúpa, mínar skuldir játa þér, má ég hjá þér höfði drúpa, hjálpar þinnar biðja mér? Herra, að á hverjum degi héðan af þér þjóna megi þar til endar ævin mín enn sem gefur mildin þín.


T Kristján Valur Ingólfsson 1981
L Sænskt lag 1697 ̶ JH 1885
Jesus, du mit liv, min hälsa

Biblíutilvísun Mark 1.32–33

Uppáhalds sálmar

Under Construction