Sálmabók

590. Vort líf er oft svo örðug för

Trúarlífið - Í fylgd með Kristi

hymn notes
1 Vort líf er oft svo örðug för og andar kalt í fang og margur viti villuljós og veikum þungt um gang. En Kristur segir: Kom til mín, og krossinn tekur vegna þín. Hann ljær þér bjarta sólarsýn þótt syrti' um jarðarvang. 2 Og hafi eitthvað angrað þig og að þér freisting sótt, þá bið þú hann að hjálpa þér og hjálpin kemur skjótt. Hans ljós á vegum lýðsins brann. Hann leiða þig til sigurs kann. Hin eina trausta hjálp er hann á harmsins myrku nótt. 3 Já, mundu' að hann á mátt og náð, þú maður efagjarn, sem aldrei bregst þótt liggi leið þíns lífs um auðn og hjarn. Frá syndum frelsuð sál þín er því sjálfur Kristur merkið ber hvert fótmál lífsins fyrir þér. Ó, fylg þú honum, barn.


T Kristján Einarsson frá Djúpalæk – Sb. 1972
L Hans Matthison-Hansen 1852 – JH 1885
Hvor salig er den lille flok

Eldra númer 384
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction